Hér eru svör við algengum spurningum
Ef þú finnur ekki svarið hér þá endilega hafðu samband við okkur hér fyrir neðan og við svörum um hæl!
1
Þarf ég að vera sterk/ur/t eða liðug/ur/t til að byrja í pole fitness?
Nei alls ekki! Það eru engar forkröfur um styrk eða liðleika til að koma til okkar - styrkurinn og liðleikinn kemur með æfingunni!
Hjá okkur æfa allskonar líkamar og öll eru velkomin
2
Í hverju á ég að vera þegar ég mæti á æfingu?
Best er að vera í einhverju sem þér líður vel í. Þar sem við æfum á chrome súlum þá þurfum við bera húð til að geta náð gripi á súlunni. Í fyrstu tímunum er gott að mæta í stuttermabol eða hlýrabol og stuttbuxum sem ná ekki mikið lengra niður en hné. Þegar lengra er komið er gott að vera í buxum sem allavega er hægt að bretta upp yfir læri til að fá grip.
Mælt er með því að nota ekki feit krem sama dag og æfing er til að gripið sé betra.
Og ekki gleyma vatnsbrúsanum þar sem þú munt líklega svitna!
3
Er öruggt að æfa pole fitness?
Það er alltaf þjálfari sem fylgist með tímanum og leiðbeinir. Þjálfarar Phoenix pole hafa allir lokið námskeiðum og vottunum til að mega þjálfa pole fitness og eru því með þitt öryggi í fyrirrúmi.
Ef þér finnst við vera leiðinleg að banna þér eitthvað þá er það bara vegna þess að okkur er annt um öryggi þitt!
4
Hvað tekur við eftir byrjendanámskeið?
Þegar þú hefur lokið 8 tíma byrjendanámskeiði hjá okkur ert þú velkomin yfir á næsta erfiðleikastig sem heitir Beginners+.
Beginners+, intermediate og advanced eru erfiðleikastiginn okkar og þau eru ekki föst námskeið líkt og byrjendanámskeiðið heldur er skráning fyrir hvern tíma gerð hér á vefsíðunni. Á hverju stigi eru gerð trikk, combo og styrktaræfingar sem eru við hæfi þeirra sem skrá sig í tímana.
Kosturinn við að vera að æfa hjá litlu stúdíó er að þjálfarinn þekkir þig og þín mörk og getur hagað æfingum þannig að þær henti þér.
5
Mega öll kyn æfa pole?
Það eru öll velkomin hjá okkur! Tímarnir eru ekki kynjaskiptir og öll sem vilja æfa pole eru velkomin
6
Eru þyngdar takmörk fyrir pole fitness?
Nei engin þyngdartakmörk eru á iðkendum. Súlurna þola meira að segja marga iðkendur í einu.
7
Hvernig skrái ég mig og greiði fyrir námskeið?
Skráning fer fram hér á vefsíðunni undir flipanum ,,Skrá sig". Hægt er að greiða á staðnum bæði með pening og korti. Við tökum við öllum helstu kortum.
8
Get ég fengið kvittun til að fá endurgreitt frá stéttarfélagi?
Já það er hægt! Þú þarft bara að senda okkur kennitöluna þína í tölvupósti á phoenixpole@live.is og við sendum þér pdf kvittun fyrir kaupunum þínum.