Verðskrá
Skilmálar Phoenix pole stúdíó
Phoenix pole stúdíó er rekið af Awesomeness ehf. Kt. 540214-0690.
Ábyrgðarskilmálar
Ég æfi á mína eigin ábyrgð í Phoenix pole stúdíó og firra Phoenix pole stúdíó allri lagalegri ábyrgð á hugsanlegum meiðslum eða slysum sem kunna að koma fyrir sem ekki verða rekin með beinum hætti til mistaka eða vanrækslu að hálfu þjálfara eða eiganda Phoenix pole stúdíó og ber ég sjálf/ur/t/ ábyrgð á mínum eigum og eða verðmætum. Það er á minni ábyrgð að tilkynna þjálfara um meiðsl, veikindi eða ástand sem mun hafa áhrif á mína æfingu. Ég geri mér fulla grein fyrir því að iðkun allrar líkamsræktar getur falið í sér hættu á slysum eða meiðslum. Ég staðfesti að ég hafi náð 18 ára aldri.
Námskeið og tímar
Nemendum ber að skrá sig fyrirfram á öll þau námskeið eða tíma sem þau vilja mæta í.
Ekki er leyfilegt að skrá sig í beginner +, intermediate eða advanced erfiðleikastig án þess að hafa lokið byrjendanámskeiði, öllum fyrri erfiðleikastigum og/eða fengið mat frá þjálfara um að nemandi megi skrá sig á tiltekið erfiðleikastig.
Frjálsir tímar eru ætlaðir þeim sem eru að æfa pole eða hafa æft pole áður.
Bæði á námskeiðum og í stökum tímum getur það komið fyrir að nemendur þurfi að deila súlu.
Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji aðilar að þau eigi kröfu á hendur Phoenix pole stúdíó sem ekki sé hægt að leysa með samkomulagi verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til Héraðsdóms Norðurlands eystra.
Húsreglur Phoenix pole stúdíó
-
Þeir sem æfa pole fitness hjá Phoenix pole stúdíó eru í æfingarsalnum á eigin ábyrgð og ber að fara varlega og hlíða tilskipunum þjálfara hverju sinni.
-
Allir skartgripir og annað sem nemandi hefur í fórum sér sem getur rispað, beyglað eða skemmt búnaðinn skal taka af sér áður en þjálfun hefst. Enda getur skartið sjálft skemmst, nemandi slasast eða búnaðurinn sjálfur (súlann) getur rispast. Nemandur bera ábyrgð á skemmdum á búnaði sem þau valda.
-
Það er bannað með öllu að segja ,,Ég get ekki” á einn eða annan hátt á meðan æfingu stendur. Það er algjörlega óþarfi að búa það til hjá sjálfum sér að geta ekki eitthvað.
Fari nemendur ekki eftir reglum hafa þjálfarar Phoenix pole stúdíó heimild til að vísa nemendum úr æfingasalnum.
Skilmálar þessir eru birtir með fyrirvara um villur.